Fara í efni

Fréttayfirlit

16.04.2010

Ýmis kortagögn af gossvæðinu

Hjá Landmælingum eru til ýmis kortagögn af gossvæðinu í Eyjafjallajökli. Þau hafa nú verið sett á sérstaka síðu og verður haldið áfram að bæta við eftir því sem gögn verða til.   Gagnasíða um Eyjafjallajökul
13.04.2010

Útbreiðsla hrauns á Fimmvörðuhálsi

Fyrirtækið Loftmyndir ehf hefur útbúið kortaþjónustu sem sýnir útbreiðslu hraunsins frá eldstöðinni ónefndu á Fimmvörðuhálsi eftir dagsetningum. Skoða hér
06.04.2010

Ákvörðunarferli varðandi nafngift á nýrri eldstöð

Fréttatilkynning Menntamálaráðherra hefur staðfest að starfshópur á vegum þeirra þriggja opinberu aðila sem hafa með örnefni að gera samkvæmt lögum, Landmælinga Íslands, nafnfræðisviðs Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og örnefnanef...
23.03.2010

Þrívíddarlíkan af gossvæðinu

Starfsmenn Landmælinga Íslands hafa lagt myndgögn ofaná landhæðarlíkan og skapað þannig þrívíddarmynd af gossvæðinu á Fimmvörðuhálsi. Smellið á meira til að sjá myndirnar. Einnig má sjá tölvugert flug yfir svæðið hér. Myndirnar eru SPOT5 myn...
22.03.2010

Kort af Eyjafjallajökli

IS 50V gagnagrunnur LMÍ er til margra hluta nytsamlegur, m.a. til að búa til einföld kort. Hér að neðan er hægt að nálgast fjögur mismunandi kort af Eyjafjallajökulssvæðinu á pdf formi.   Eyjafjallajökull stórt án nafna (pdf 6,6 mb) Eyjafjal...
19.03.2010

Vel heppnaður kynningarfundur um IS 50V

Landmælingar Íslands buðu helstu notendum IS 50V gagnagrunnsins til morgunverðarfundar þann 18. mars, þar sem fjallað var um þær uppfærslur sem eru á leiðinni í grunninum. Einnig var farið yfir þarfir notenda og óskað eftir ábendingum um það sem b...
12.03.2010

Kort sýnir eldgos í Eyjafjallajökli

Á síðustu vikum og misserum hefur Eyjafjallajökull verið í umræðunni vegna mögulegs eldgoss þar. Hæfist þar eldgos yrði það væntanlega tilkomumikið sjónarspil þar sem kvikan myndi væntanlega koma í snertingu við jökulís. Yrði þá mikil og snögg brá...
07.03.2010

Ja.is valinn besti íslenski vefurinn 2009 þar er m.a. notast við IS 50V gögn LMÍ

Ja.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaununum sem Samtök vefiðnaðarins stóðu fyrir. Vefurinn vann til verðlauna í þremur flokkum og státar af frábærri kortalausn sem nýtir m.a. IS 50V gögn frá Landmælingum Íslands.
26.02.2010

Skipulagsvefsjá í loftið

Skipulagsstofnun hefur opna Skipulagsvefsjá á heimasíðu sinni en þar er um að ræða rafrænt gagnasafn skipulagsáætlana. Markmiðið er að þar verði með tímanum hægt að nálgast allt deili- og aðalskipulag sem samþykkt og staðfest hefur verið.   ...
23.02.2010

Kynningarfundur um örnefnaskráningu á Akranesi

Næstkomandi fimmtudag, 25. febrúar, munu fulltrúar frá Landmælingum Íslands kynna vinnu sem staðið hefur yfir við skráningu örnefna á Akranesi í samstarfi við Akraneskaupstað. Fundurinn verður haldinn í Tónbergi og hefst kl. 20.00. Á sam...
09.02.2010

Nýtt lagafrumvarp um bætt aðgengi að landupplýsingum

Í frumvarpinu er lagt til að byggð verði upp grunngerð landupplýsinga á vegum stjórnvalda og henni viðhaldið í þeim tilgangi að tryggja aðgengi yfirvalda og almennings að slíkum gögnum á Íslandi. Almenningi er gefinn kostur á að koma á framfæri...
28.01.2010

Sveitarfélagaskjár uppfærður

Nú hefur sveitarfélagakortið á sveitarfélagaskjánum verið uppfært með mannfjöldatölum miðað við 1. desember 2009. Sveitarfélög á Íslandi eru 77.