Fara í efni

Ákvörðunarferli varðandi nafngift á nýrri eldstöð

Fréttatilkynning Menntamálaráðherra hefur staðfest að starfshópur á vegum þeirra þriggja opinberu aðila sem hafa með örnefni að gera samkvæmt lögum, Landmælinga Íslands, nafnfræðisviðs Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og örnefnanefndar, fari í sameiningu með ákvörðunarvald á nafngift nýrrar eldstöðvar neðan Fimmvörðuháls. Með þessari staðfestingu hefur verið eytt óvissu um hver skuli ákveða nafn á hinu nýja kennileiti, en mikill áhugi er á nafngiftinni og starfshópnum hafa borist fjölmargar tillögur. Næstu skref hópsins eru því að fara yfir tillögurnar auk þess að kynna sér þau örnefni sem þekkt eru á svæðinu en nokkuð vandaverk kann að vera að velja nafn á eldstöð sem enn er í fullri virkni og óljóst er hvernig muni þróast.