Fara í efni

Stafræn kort og landupplýsingar LMÍ gerð gjaldfrjáls

Stafræn kort og landupplýsingar í vörslu Landmælinga Íslands hafa frá og með 23. janúar 2013 verið gerð gjaldfrjáls,  samkvæmt ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra. Gögnin eru notuð við ýmis verkefni á vegum stofnana ríkisins s.s. við eignaskráningu, skipulagsmál, náttúruvernd, náttúruvá, orkumál, rannsóknir og opinberar framkvæmdir en einnig gagnast þau almenningi og fyrirtækjum með margvíslegum hætti.  

Markmiðið með því að gera stafræn kort og landupplýsingar gjaldfrjáls er að almenningi á Íslandi sé tryggður greiður aðgangur að upplýsingum um  umhverfi og náttúru landsins. Einnig er markmiðið að hvetja til aukinnar notkunnar, úrvinnslu og miðlunar þessara gagna t.d. á sviði ferðaþjónustu, opinberrar stjórnsýslu og í menntakerfinu. 

Aðgengi að gögnum og upplýsingum hefur aukist verulega með tilkomu internetsins. Dæmi um það er notkun Google netfyrirtækisins á kortum og landupplýsingum en fyrir fyrir nokkrum árum kynnti það þjónustuvefina Google Earth og Google Maps. Báðar þessar vefsíður  byggja að mestu á gjaldfrjálsum gögnum, sem skýrir hversu ónákvæm kort fyrirtækið notar af Íslandi.

Stafræn landakort og aðrar opinberar landupplýsingar s.s. loftmyndir hafa í auknum mæli verið gerð aðgengileg án gjaldtöku í nágrannalöndunum. Í nýlegri erlendri rannsókn kemur fram að í þeim löndum þar sem opinber kortagögn og landupplýsingar eru án gjaldtöku er vöxtur fyrirtækja sem reiða sig á slík gögn 15% meiri en í þeim löndum þar sem gögnin eru seld.

Þá hafa dönsk stjórnvöld bent á að ávinningurinn af því að gera opinber stafræn kort og landupplýsingar gjaldfrjáls sé margfaldur fyrir samfélagið en það birtist m.a. í betri og meiri notkun á gögnum og nýsköpun í atvinnulífinu.

Landmælingar Íslands hafa þegar gert  kortagögnin aðgengileg til niðurhals á vef sínum, www.lmi.is án gjaldtöku. 

From 23 January 2013 digital maps and Spatial Data held by the National Land Survey of Iceland has been made free of charge, as determined by Svandís Svavarsdóttir Environment and Natural Resources Minister. The data is used in various projects of state agencies such as registration, planning, nature conservation, natural hazards, energy, research and public projects, but they also benefit the public and businesses in various ways.

The purpose of making digital maps and Spatial Data free of charge is to ensure that the general public in Iceland is guaranteed easy access to information about the environment and nature of Iceland. The goal is also to encourage increased use, processing and dissemination of this data, for example in the field of tourism, public administration and education.

NLSI has already made ??the map data available for download on their website, www.lmi.is without charge.

Â