Fara í efni

Ársskýrsla 2014

Ársskýrsla Landmælinga Íslands fyrir árið 2014 er komin út. Ársskýrslan er gefin út á rafrænu formi og er hún aðgengileg hér á vef stofnunarinnar. Í ársskýrslunni er sagt frá helstu verkefnum stofnunarinnar á árinu 2014. Fram kemur í ávarpi forstjóra að sú ákvörðun að hafa opin aðgang að gögnum Landmælinga Íslands hefur hvatt til aukinnar notkunar gagnanna á sviði kortagerðar, ferðaþjónustu, opinberrar stjórnsýslu og í menntakerfinu. Þá kemur einnig fram að undanfarin ár hefur verið unnið af miklum metnaði við að hlúa að starfsmönnum og starfsumhverfi þeirra og það hafi m.a. skilað sér í góðum starfsanda. Skoða sem PDF  Ársskýrsla 2014 á pdf formi. Ársskýrsla 2014 í flettiforriti   Â