Fara í efni

Ársskýrsla 2013

Síðastliðinn föstudag kom Ársskýrsla Landmælinga Íslands fyrir árið 2013 út. Ársskýrslan er gefin út á rafrænu formi og er hún aðgengileg hér á vef stofnunarinnar.

Í ársskýrslunni er sagt frá helstu verkefnum stofnunarinnar á árinu 2013. Í ávarpi forstjóra kemur fram að mikilvægt skref í átt að betra aðgengi að opinberum gögnum hafi verið stigið í upphafi ársins þegar ákveðið var að gera öll gögn í vörslu Landmælinga Íslands gjaldfrjáls.  Þá kemur fram að rekstur Landmælinga Íslands á árinu 2013 hafi gengið vel og að rekstrarniðurstaða hafi verið í samræmi við fjárhagsáætlun ársins. 

Ársskýrsluna er hægt að skoða í flettiforriti eða sem PDF skrá.

Skoða í flettiforriti Ársskýrsla 2013
Skoða sem PDF  Ársskýrsla 2013

Myndin á forsíðu ársskýrslunnar er tekin á fjölskyldudegi Landmælinga Íslands.