Fara í efni

Nýr umhverfisráðherra í heimsókn

Í dag kom Þórunn Sveinbjarnardóttir nýskipaður umhverfisráðherra í heimsókn til Landmælinga Íslands og kynnti sér starfsemi stofnunarinnar. Ráðherra heilsaði upp á starfsmenn og kynnti sér þau verkefni sem unnin eru á stofnuninni. Í heimsókninni var ráðherra afhent fyrsta eintak nýs staðals sem ber heitið Fitjuskrá - Skráning og flokkun landupplýsinga og unnið hefur verið að undanfarin ár. Â