Fara í efni

LMÍ veita ráðgjöf í Albaníu

Eitt af markmiðum Landmælinga Íslands er að nýta kosti  innlends og erlends samstarfs til að afla og miðla þekkingu, meðal annars á sviði landmælinga.  Að undanförnu hefur stofnunin, í  samstarfi við norsku kortastofnunina Kartverket, tekið  þátt í ráðgjafaverkefni í  Albaníu sem snýr að þróun og styrkingu á grunnhnitakerfi landsins.  Fyrir hönd Landmælinga Íslands stýrir Guðmundur Valsson mælingaverkfræðingur verkefninu og fór hann til Albaníu á dögunum til að veita aðstoð við að koma upp landmælingakerfum sambærilegum þeim sem eru annars staðar í Evrópu.  Guðmundur skoðaði kerfin sem Albanir hafa notað  við landmælingar og hefur hann í framhaldi af því gert tillögur um hvernig hægt er að bæta þau og endurnýja.  Albanir vinna um þessar mundir að því að koma á fót nýrri landmælingastofnun en hingað til hafa landmælingar landsins verið í höndum hersins. Verkefnið í Albaníu tilheyrir þróunarverkefni á vegum Kartverket sem einnig greiðir allan kostnað vegna þess.

Meðfylgjandi mynd er tekin í Albaníu