Fara í efni

Landmælingar Íslands sjötta besta stofnunin

Landmælingar Íslands urðu í sjötta sæti í vali á stofnun ársins í flokki minni stofnana og einnig ef miðað er við heildarfjölda.   SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stóð nú í sjötta sinn að þessu vali. Könnun var gerð meðal allra starfsmanna stofnunarinnar óháð því í hvaða stéttarfélagi þeir væru. Ljóst er að sú einkunn sem þeir gefa vinnustað sínum er vitnisburður um góðan starfsanda, starfsmannastefnu og stjórnunar Landmælinga Íslands, en heildareinkunn hækkaði milli ára úr 4,40 í 4,52. Landmælingar Íslands hafa tekið þátt í þessari könnun frá upphafi og hafa ætíð verið framarlega í flokki. Árið 2006 varð stofnunin í 10 sæti og árið eftir í því 9. Árið 2008 var farið að skipta stofnunum upp í minni og stærri stofnanir og urðu Landmælingar Íslands þá í sjötta sæti í heild og sjötta sæti minni stofnana. Í fyrra varð stofnunin svo í 5. sæti heildarinnar og einnig í flokki minni stofnana. Heimasíða SFR