Landmælingar hljóta alþjóðleg landupplýsingaverðlaun
Landmælingar Íslands hafa hlotið alþjóðleg verðlaun ESRI, sem er leiðandi fyrirtæki í landfræðilegum upplýsingakerfum í heiminum. Verðlaunin nefnast SAG (Special Achievement in GIS) og eru þau veitt þeim sem skara framúr í notkun á hugbúnaði fyrirtækisins. Að þessu sinni hlutu um 170 stofnanir eða fyrirtæki verðlaunin úr hópi um 300.000 viðskiptavina ESRI.
Â
Landmælingar Íslands, sem eru ein af stofnunum umhverfisráðuneytisins, hlutu þessi verðlaun fyrir uppbyggingu á Landupplýsingagátt stofnunarinnar en það er vefsvæði þar sem notendur geta leitað eftir lýsigögnum um landupplýsingar opinberra aðila og tengist hún INSPIRE-tilskipun Evrópusambandsins og lögum um grunngerð landupplýsinga sem tóku gildi Íslandi á síðsta ári (sjá nánar á http//gatt.lmi.is).
Â
Verðlaunaafhendingin fór fram á notendaráðstefnu ESRI í San Diego 25. júlí 2012 og tók Gunnar H Kristinsson, forstöðumaður sviðs mælinga og landupplýsinga við verðlaununum fyrir hönd Landmælinga Íslands. Við það tækifæri sagði Jack Dangermond forstjóri ESRI m.a. að þessi verðlaun væru veitt þeim sem skarað hafa framúr í notkun á landfræðilegum aðferðum til að koma til móts við þarfir samfélagsins og þar með skilgreint bestu starfshætti á þessu sviði.
Â
Þetta er í annað sinn sem Landmælingum Íslands hlotnast þessi heiður en 2001 fékk stofnunin sömu verðlaun fyrir uppbyggingu á IS 50V gagnagrunninum.