Fara í efni

Kortasjáin vinsæl

Með samantekt á lykiltölum ársins 2015 kom í ljós að ásóknin í Kortasjána hefur aukist með hverju árinu frá því í maí 2013. Kortasjá LMÍ hefur um nokkurt skeið verið einn vinsælasti hluti vefs Landmælinga Íslands og áhugavert er að sjá að vinsældir hans fara enn vaxandi. Áhugavert er að skoða hvernig notkun kortasjárinnar endurspeglar sumarleyfistímann á Íslandi en notkunin eykst yfir sumarmánuðina, dettur aðeins niður yfir vetrarmánuðina og eykst svo aftur þegar fólk fer að skipuleggja sumarfrí sín eða til að átta sig á staðháttum þegar komið er í bústaðinn. Um þessar mundir er þó unnið að endurbótum á Kortasjá LMÍ sem ætti að auðvelda enn frekar notkun hennar. Unnið er að því að taka í notkun nýjan hugbúnað frá Finnlandi sem nefnist OSKARI og má gera ráð fyrir að breytingar verði sýnilegar á haustmánuðum.