Hvað er grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar -eða einfaldlega grunngerð?
Samkvæmt lögum nr. 44/2011 er grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar: Tækni, stefnur, staðlar og mannauður sem þarf til að afla stafrænna landupplýsinga, vinna úr þeim, varðveita, miðla og auðvelda notkun þeirra.
Grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar byggir á nokkrum meginreglum INSPIRE:
Gögnum skal einungis safnað einu sinni;
Gögnum skal vera haldið við þar sem hægt er að gera það á sem hagkvæmastan hátt;
Einfalt yfirlit verði til yfir hvaða gögn og þjónusta er í boði (lýsigögn);
Gögn ætti að nota frá upprunastað sínum;
Tryggt sé að hægt sé að nota gögn frá mörgum í mismunandi samhengi