Fara í efni

Hálendisvegir kortlagðir

Á undanförnum vikum hafa Landmælingar Íslands og Ferðaklúbburinn 4x4 GPS-mælt vegi á hálendi Íslands.  Markmið þessa samstarfsverkefnis er að útbúa gagnagrunn um vegi og slóða á hálendi Íslands. Gagnagrunninn verður hægt að nota í margvíslegum tilgangi, ekki síst fyrir umhverfisráðuneytið og sveitarfélög vegna vinnu til að koma í veg fyrir utanvegaakstur. Samstarfið er á þá leið að 4x4 leggja til bíla og þaulvana bílstjóra en Landmælingar Íslands sjá um mannskap og búnað til mælinganna. Þessi aðferð skilar mjög nákvæmum gögnum þar sem ekki er einungis um að ræða mælingu á vegunum sjálfum heldur eru einnig skráðir ýmsir  aðrir þættir s.s. ástandi þeirra, lýsing og yfirborð. Â