Fara í efni

Frumvarp til laga um örnefni

Á næstunni mun mennta- og menningarmálaráðherra leggja fram á Alþingi, frumvarp til laga um örnefni. Frumvarpið er nú lagt fram í þriðja sinn en það var áður lagt fram á 142. og 143. Löggjafaþingi. Markmiðið með lögunum er meðal annars að stuðla að verndun örnefna og nafngiftarhefð í landinu sem hluta af íslenskum menningararfi og tryggja að honum verði viðhaldið handa komandi kynslóðum. Einnig er marmiðið að samræma stjórnsýslu við skráningu örnefna þannig að ferli nafngifta sé opið, gagnsætt og skilvirkt. Verði frumvarpið að lögum, verða breytingar við gildistöku þeirra á lögum um landmælingar og grunnkortagerð nr. 103/2006, sem meðal annars lúta að örnefnagrunni. Þar kemur fram Landmælingar Íslands skuli sjá um skráningu, viðhald og miðlun örnefnagrunns í samráði við Stofnun Árna Magnússonar í íslensku fræðum og að innihald hans skuli vera aðgengilegt og til endurnota án gjaldtöku og í samræmi við ákvæði upplýsingalaga nr 140/2012. Þá kemur fram að Landmælingar Íslands skulu gera almenningi kleift að skrá örnefni í sérstakan gagnagrunn á vegum stofnunarinnar.