Fara í efni

Frumvarp að 2. útgáfu ÍST 120 staðalsins komið út

Frumvarp að 2. útgáfu ÍST 120 staðalsins Skráning og flokkun landupplýsinga – Uppbygging fitjuskráa, kom út 2. apríl síðastliðinn. Fyrsta útgáfa staðalsins kom út árið 2007 en í nýju útgáfunni hafa verið gerðar verulegar breytingar.

 Breytingarnar má rekja til þess að annars vegar er verið að koma til móts við kröfur notenda staðalsins með því að gera hann einfaldari og aðgengilegri, hins vegar hefur hugtakanotkun verið rýnd og hugmynda- og aðferðarfræðin endurskoðuð í samræmi við alþjóðlega staðla á sviði landupplýsinga.

Frumvarpið hefur verið gefið út og auglýst í Staðlatíðindum á vef Staðlaráðs http://www.stadlar.is/stadlatidindi/ og umsagnarfrestur er til 4. júní næstkomandi.