CORINE landgerðabreytingar á Íslandi 2000 – 2018
CORINE landgerðaflokkuninni var lokið í nóvember 2018 og var þetta í fjórða skipti sem hún var gerð hér á landi. CORINE er samevrópskt landgerða-/landnotkunarflokkunarverkefni sem 39 Evrópulönd taka núna þátt í. Notaðar eru gervitunglamyndir til þess að kortleggja landgerðir samkvæmt ákveðnum flokkunarlykli og eru breytingar á landgerðum/landnotkun kortlagðar á 6 ára fresti. CORINE flokkun var fyrst gerð hér á landi fyrir árið 2000 og hefur síðan verið uppfærð þrisvar sinnum; 2006, 2012 og núna síðast 2018. Umhverfisstofnun Evrópu í Kaupmannahöfn hefur umsjón með CORINE verkefninu en flokkunarvinnan hér á landi fer fram hjá Landmælingum Íslands.
Í CORINE flokkast land í 5 grunnflokka (1. Manngert yfirborð, 2. Landbúnaðarland, 3. Skóga og önnur náttúruleg svæði, 4. Votlendi og 5. Vötn og höf) sem síðan greinast í 44 landgerðir. Af þeim koma 32 fyrir á Íslandi.
Á meðfylgjandi myndum er landgerðabreytingar sem kortlagðar voru 2006, 2012 og 2018 táknaðar með rauðum lit:
- Efsta mynd: Landgerðabreytingar sem urðu milli 2012 og 2018.
- Miðmynd: Breytingar milli 2006 og 2012.
- Neðsta mynd: Breytingar sem urðu milli 2000 og 2006.
- Keflavíkurvegurinn var að mestu tvöfaldaður fyrir árið 2006 og kemur því inn sem breyting á neðstu myndinni (einfaldir vegir eru of mjóir til þess að flokkast með í CORINE).
- Kárahnjúkalón var fyrst fyllt sumarið 2007 og þá verða einnig miklar breytingar á Jökulsá á Brú (miðmyndin).
- Árið 2018 eru helsu breytingar vegna árangurs af landgræðslu á Hólasandi (S-Þineyjarsýslu) og á Haukadalsheiði (sunnan Langjökuls). Þá varð eldgos í Holuhrauni 2014 þar sem 85 km2 hraun rann yfir land þar sem aðallega voru sandar og jökuláreyrar.