Fara í efni

Bylting í aðgengi að heimildum um sveitarfélagamörk

Landmælingar Íslands varðveita mikið af heimildum um legu marka sveitarfélaga á Íslandi. Mörkin hafa talsvert breyst á undanförnum áratugum, aðallega vegna sameiningar sveitarfélaga. Því er sumstaðar um að ræða heimildir um mörk sem ekki eru lengur notuð. Til þess að auðvelda aðgengi að þessum gögnum hafa þau verið skönnuð og gerð aðgengileg á vefsíðu stofnunarinnar. Skoða hér

Gögnin birtast nákvæmlega eins og þau líta út í skjalasafni Landmælinga Íslands í upphafi árs 2009. Engin ábyrgð er tekin á áreiðanleika þeirra gagna sem birt eru og komi upp vafi um legu marka skal upplýsingum um slíkt komið til samgönguráðuneytisins eða Landmælinga Íslands.