Fara í efni

Aðgengi að landupplýsingum á Íslandi að aukast

Myndin sýnir þau svæði sem eru vatnsverndarsvæði, mikilvæg fuglasvæði, landgræðslusvæði og friðlýst…
Myndin sýnir þau svæði sem eru vatnsverndarsvæði, mikilvæg fuglasvæði, landgræðslusvæði og friðlýst svæði landsins. Áhugavert er að sjá þessi gögn saman í ljósi umræðu um s.s. miðhálendisþjóðgarð. Samanburð líkt og þennan geta notendur landupplýsingagáttar gert sjálfir.
Síðan lög um grunngerð fyrir stafrænar landupplýsinga á Íslandi voru sett árið 2011, hafa opinberir aðilar unnið að því að gera gögn sín aðgengileg. Eitt fyrsta verkefnið var að skrá lýsigögn fyrir gögnin og birta þær upplýsingar, auk þess gera gögnin sýnileg. Fyrsta skrefið í aðgengi hefur verið í formi skoðunarþjónusta og er nú hægt að skoða gögn frá mismunandi aðilum í einni landupplýsinga gátt sem  Landmælingar Íslands reka.  Staðan á innleiðingu grunngerðar landupplýsinga á Íslandi er nú í lok árs þannig: Fjöldi skráðra lýsigagna frá lokum desember 2016 til dagsins í dag hefur farið úr 142 í 204. þetta þýðir að nú hafa notendur upplýsingar um rúmlega 60 fleiri gagnasett en áður. https://gatt.lmi.is   Þá er jafnframt í dag hægt að skoða 106 gagnasett í landupplýsingagáttinni https://kort.lmi.is/?lang=is og nýta þau saman með öðrum gögnum. Þessi gagnasett koma frá 11 stofnunum auk gagna frá einkaaðilum. Á nýju ári munu Landmælingar Íslands leggja aukna áherslu á aðgengi að opinberum landupplýsing s.s. með aukinni aðstoð við smærri stofnanir. Þá er einnig mikilvægt að opinberar landupplýsingar sveitarfélaga verði gerðar aðgengilegar með vefþjónustum og fyrir þau skráð lýsigögn. Notkun landupplýsinga frá mismunandi aðilum hefur þegar sannað sig við ýmsa vinnu stjórnsýslunnar . Það er því hagur allra að aðgengi að landupplýsingum sé að aukast eins og tölurnar frá 2017 gefa vísbendingu um. Hér fyrir neðan er listi nokkurra þeirra 106 landupplýsinga sem hægt er að skoða í landupplýsingagáttinni ásamt upplýsingum um uppruna þeirra :  
Gögn Gagnaeigandi
Kvikmyndatökustaðir á Íslandi Ferðamálastofa
Sögulegar ljósmyndir danskra landmælingamanna Landmælingar Íslands
Örnefni á Íslandi Landmælingar Íslands
Mörk landeigna Þjóðskrá
Breytingar á stjórnsýslumörkum frá 1904 Landmælingar Íslands
Mikilvæg fuglasvæði Náttúrufræðistofnun
Heimilisföng (staðföng) Þjóðskrá
Jarðvegskort af Íslandi Landbúnaðarháskóli Íslands
Landgræðslusvæði Landgræðsla ríkisins
Dýpislínur umhverfis Ísland Landhelgisgæslan
Jarðhitasvæði á Íslandi Náttúrufræðistofnun
Vatnsverndarsvæði Orkustofnun
Náttúrulegt birkilendi Skógræktin
Friðlýst svæði á Íslandi Umhverfisstofnun