Fara í efni

Afmælisráðstefna og opið hús hjá Landmælingum Íslands 20. maí 2016

Ráðstefna

Árið 2016 er alveg sérstakt hjá Landmælingum Íslands vegna þess nú eru 60 ár eru frá því að stofnunin var sett á laggirnar. Að því tilefni verður haldin afmælisráðstefna þann 20. maí kl. 9:00 - 12:00. Ráðstefnan verður haldin í Tónbergi, sal Tónlistarskóla Akraness. Umfjöllunarefnið á ráðstefnunni er mikilvægi góðra korta og landupplýsinga í samfélaginu m.a. í tengslum við örnefni, leit og björgun, náttúruvá og ferðaþjónustu. Umhverfis- og auðlindaráðherra Sigrún Magnúsdóttir mun setja ráðstefnuna.    

Dagskrá      Skráning.

Opið hús

Eftir hádegið sama dag verður svo opið hús frá 14:00 - 17:00 hjá Landmælingum Íslands þar sem gestir geta hitt starfsmenn og kynnt sér starfsemina. Samhliða ráðstefnunni verður sýning í Tónbergi, þar sem börn úr þriðja bekk Brekkubæjarskóla og fjórða bekk Grundaskóla á Akranesi sýna afrakstur verkefna um Ísland, örnefni og náttúru m.a. í tengslum við afmæli Landmælinga Íslands. Við hlökkum til að sjá ykkur á Skaganum 20. maí nk., takið daginn endilega frá Starfsfólk Landmælinga Íslands